Langar þig að hlúa að þér á mildan og markvissan hátt ? Á þessu 4 vikna námskeiði fléttar Ásta saman yin yoga, metta hugleiðslu og tónheilun sem gefur djúpa slökun og endurnýjun fyrir líkama og sál.
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og slakað á í hverri stöðu í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Metta hugleiðsla er leidd hugleiðsla sem vökvar frá góðvildar og kærleika á skapandi hátt. Lögð er áhersla á sjálfsmildi og kærleiksrkíka nærveru.
Tónheilun með kristalskálum er frábær leið til að fínstilla orkusvið líkamans. Ásta spilar á kristalskálar sem hækka orkutíðni, skapa jafnvægi og gefa djúpa ró.
YIN YOGA TÓNHEILUN 4 VIKUR HEFST 10. MAÍ
KENNT mánudaga og miðvikudag kl. 16.20 (60 mín)
KENNARI Ásta Arnardóttir
SKRÁNING smelltu hér
Sorry, comments are closed for this post.