Yoga nidra er leidd djúðslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Nidra þýðir svefn og yoga þýðir eining, þannig þýðir yoga nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í djúpri kyrrð. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld.
SMELLTU HÉR TIL AÐ HLUSTA Á YOGA NIDRA
YOGA NIDRA 8 VIKNA NÁMSKEIÐ eru haldin reglulega í Yogavin
Smelltu hér til að sjá dagsetningar á næstu námskeiðum