Kyrrðarvaka
Heilandi máttur hvíldar
27. febrúar 4 dagar á Eirð
með Ástu Arnardóttur
Nærandi iðkun yin yoga, núvitundar og yoga nidra
Kyrrðarstundir og kyrrðargöngur í undurfögru umhverfi
Djúp hvíld og endurheimt lífsorku.
Öll velkomin
Þau sem hafa lokið kyrrðarvöku geta tekið leiðbeinandaréttindi
Yin yoga & núvitund 50 tímar
Yoga nidra & tónheilun 50 tímar
Kyrrðarvakan verður einnig haldin í febrúar 2026 og sú kyrrðarvaka er innifalin í 200 tíma yogakennaranámi Yoga til heilunar , sem hefst 8. ágúst næstkomandi 2025.
Heilandi máttur hvíldar
Eirð
er staðsett í fögru og kyrrlátu umhverfi við Gíslholtsvatn á Suðurlandi.
Eirð er undurfagur og vandaður griðarstaður hannaður af Svövu Björk Hjaltalín arkitekt og yogakennara og Thor Olafsson. Þau hjónin hafa skapað einstaka vin sem lyftir andanum og nærir hjartað.
Fallegur yogasalur, tveggja manna herbergi með baði, heitur pottur, setustofa og matsalur með arinn og fögru útsýni.
Boðið uppá gómsætt grænmetisfæði.
Sjá nánar um Eirð
Ásta Arnardóttir
er eigandi Yogavin og hefur kennt yoga frá 1999. Hún lauk RYS 200 yogakennaranámi frá Kripalu Center for Yoga and Health 1999, Yin Yoga kennarnám Sarah Powers 2013, Total Yoga Nidra Teacher Training Uma og Nirlipta Tuli í Yogavin 2014 , 300 RYS Brahmaniyoga Level II Teacher Training Julie Martin 2016, Yoga Nidra Teacher training Matsyandra í Yogavin 2017, Pranayama Teacher Training, Matsyandra í Yogavin 2021.
Ásta er stofnfélagi Félags um vipassana hugleiðslu, situr í stjórn félagsins og hefur haldið kyrrðarvökur á þess vegum frá 2011. Hún hefur stundað vipassana hugleiðslu frá 1997 og farið reglulega á kyrrðarvökur (silent retreat) til Gaia House, Spirit Rock Meditation Center og IMS en þar tók hún þátt í 3 mánaðar kyrrðarvöku haustið 2013.
Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og útskrifað á annað hundrað yogakennara. Hún hefur fjölbreytta verkfærakistu í farteskinu sem nýtist fjölbreyttum hópi iðkenda til aukinnar meðvitundar, bættrar heilsu og velsældar í daglegu lífi.
Kyrrðarvakan
er nærandi tími fyrir alla sem vilja hægja á og hlúa að líkama og sál á hjartnæman hátt í fallegu umhverfi. Með sjálfsmildi og alúð að leiðarljósi könnum við heilandi mátt hvíldar með iðkun yin yoga, hugleiðslu og yoga nidra.
Fléttað saman fræðslu og iðkun á skapandi og markvissan hátt þar sem þátttakendur fá beina reynslu af heilandi áhrifum yogaiðkunar, djúpri hvíld og endurheimt lífsorku.
Kennd grunntæknin í yin yoga, núvitund og yoga nidra. Fjallað um áhrif á líkama, taugakerfið, orkusvið og huga.
Hvatning til að heiðra þína leið til heilunar, innsæis og visku hjartans.
Kyrrðarvakan fer að hluta til fram í þögn sem gefur djúpa og nærandi hvíld frá erilsömu lífi og dagsins önn.
Nærandi iðkun
Yin yoga
Yin yoga felur í sér meðvitaða hjartnæma hlustun og heildræna meðhöndlun á líkama, tilfinningum, huga og fíngerðari orkusviðum.
Með því að hægja á, dvelja í liggjandi og sitjandi stöðum í 5 – 20 mínútur gefst tækifæri að kynnast líkama, tilfinningum, huga og orkusviði betur. Hver staða er eins og stutt hugleiðsla þar sem iðkun núvitundar opnar fyrir aukna meðvitund.
Anatomiskt gefur hver staða þrýstinudd sem hefur áhrif á líffæri, djúpvefi, liðamót, bein, orubrautir og orkustöðvar. Iðkunin miðast að því að efla kærleiksríka nærveru og skapa jafnvægi og traust.
Kyrrðargöngur, vinyasa (yogaflæði) til mótvægist við yin þátt iðkunar.
Núvitund
Núvitundar (mindfulness) er aðgengileg og áhrifarík iðkun sem eflir jákvæða hugsun, eykur vellíðun í daglegu lífi og mörg einkenni streitu og kvíða minnka eða hverfa.
Með því að beina athyglinni alúðlega að líkamanum og augnablikinu hér og nú, þjálfum við hugann og opnum fyrir virka hlustun.
Frætt verður um fjórar stoðir núvitundar, metta hugleiðslu og grunnstefin í Buddha Dharma.
Iðkun núvitundar í yin yoga, hugleiðslu, kyrrðargöngum, íhugun og daglegum athöfnum.
Yoga nidra
Yin yoga felur í sér meðvitaða hjartnæma hlustun og heildræna meðhöndlun á líkama, tilfinningum, huga og fíngerðari orkusviðum.
Með því að hægja á, dvelja í liggjandi og sitjandi stöðum í 5 – 20 mínútur gefst tækifæri að kynnast líkama, tilfinningum, huga og orkusviði betur. Hver staða er eins og stutt hugleiðsla þar sem iðkun núvitundar opnar fyrir aukna meðvitund.
Anatomiskt gefur hver staða þrýstinudd sem hefur áhrif á líffæri, djúpvefi, liðamót, bein, orubrautir og orkustöðvar. Iðkunin miðast að því að efla kærleiksríka nærveru og skapa jafnvægi og traust.
Skirteini og verð
Verð
169.000 - velkomið að skipta greiðslu en lokagreiðsla þarf að berast fyrir 15. feb.
Staðfestingargjald 45.000 (ekki endurgreitt)*
*Ef forföll verða af óviðráðanlegum aðstæðum er velkomið að nýta greiðslu sem inneign í Yogavin.
Mörg fagfélög og stéttarfélög styrkja sitt félagsfólk.
Innifalið:
Öll kennsla og leiðsögn
Yin yoga fræðsla og iðkun
Yoga nidra fræðsla og iðkun
Núvitund fræðsla og iðkun
Möntrur
Gisting á Eirð (exclusive resort) 3 nætur
Gómsætt grænmetisfæði kvöldmatur (fim föst laug), morgunmatur (föst laug sunn), hádegismatur (föst laug sunn)
Undurfagur hugleiðslusalur með fögru útsýni
Heitur pottur og baðferð í Gíslholtsvatn
Kyrrðarstund og kakó við arineld
Kyrrðargöngur
Kyrrðarvakan gefur réttindi til leiðbeinandanáms í Yin yoga & núvitund (50 tímar)
Kyrrðarvakan gefur réttindi til leiðbeinandanáms í Yoga nidra & tónheilun (50 tímar)
1 mánuður opið kort í Yogavin (verðmæti 15.900)
Leiðbeinanda réttindi
Kyrrðarvakan er opin öllum.
Þau sem vilja halda áfram og öðlast leiðbeinendaréttindi geta skráð sig í framhald.
Yin yoga & núvitund (50 tímar)
Yoga Nidra & tónheilun (50 tímar)
Til þess að skrá sig í námið þarf að hafa lokið kyrrðarvökunni “Heilandi máttur hvíldar”.
NB! Önnur kyrrðarvaka verður haldin í febrúar 2026 og er þá innifalin í yogakennaranámi Yogavin, Yoga til heilunar 200 tímar sem hefst 8. ágúst 2025.