Langar þig að slaka á, hlúa að líkamanum og efla meðvitund ?
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut.
Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST 8. apríl
KENNT mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
KENNARI Áróra Helgadóttir
4 vikur VERÐ 13.500 – innifalið opið kort í Yogavin *
*NB! vegna frídaga annan í páskum og 1. maí stendur námskeiðið í 5 vikur
8 vikur TILBOÐ 22.000 – innifalið opið kort í Yogavin*
*NB! vegna frídaga annan í páskum og 1. maí stendur námskeiðið í 9 vikur
Opið kort gildir í alla tíma skv. stundaskrá
Sorry, comments are closed for this post.