270 TÍMA YOGAKENNNARANÁM hefst 10. ágúst
Námið hefst á 10 daga dvöl í Skálholtsbúðum þar sem gefst frábært tækifæri til að dýpka iðkun og þekkingu. Dagleg iðkun yoga og hugleiðslu, fræðsla og kyrrðarstundir, möntrur og dans, yoga úti í náttúrunni, gómsætt grænmetisfæði og gefandi samvera skapar góðan grunn sem að nemendur byggja á í framvindu námsins. Helgarnámskeið fara fram í Yogavin 6 helgar.
Þetta nám er fyrir alla sem langar í skapandi leiðangur sjálfsþekkingar með landakort yogafræðanna að leiðarljósi. Námið er markvisst og gefandi tækifæri til að sannreyna hvernig yogaiðkun eflir meðvitund og skapar jafnvægi og sátt í daglegu lífi.
Í fyrri hluta námsins er lögð áhersla á persónulega iðkun yoga og hugleiðslu, í seinni hluta námsins er lögð áhersla á kennslufræði og æfingakennslu.
Námið er viðurkennt af JKFÍ og gefur alþjóðlega yogakennararéttindi.
Kennarar:
Ásta Arnardóttir yogakennari
Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir ( heilpraktiker ) / anatomia innri líffæra
Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir yogakennarai og sjúkraþjálfari / anatomia stoðkerfisins
Sjá námskrá og nánari upplýsingar
Skráning
yoga@yogavin.is
sími 862 6098
Sorry, comments are closed for this post.