Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum og yin yoga stuðlar að jafnvægi í orkubrautunum.
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
yoga@yogavin.is
Sorry, comments are closed for this post.