Yoga og hugleiðsluhelgi með Ástu Arnardóttur. Yogahelgin er haldin í þögn og er frábært tækifæri til að næra andann og stunda yoga og hugleiðslu í kyrrlátu og fallegu umhverfi. Þátttakendur njóta kyrrðar og leiðsagnar sem dýpkar iðkun og eflir meðvitund um augnablikið hér og nú.
Yoga, hugleiðsla, yoga nidra, kyrrðargöngur úti í náttúrunni, möntrur, heilsufæði, heitur pottur, fræðsla, hvíld.
Kennsla: Ásta Arnardóttir
Matseld: Brynhildur Þorgeirsdóttiri
Umsjón á kyrrðarvöku: Ragnar Sigurðsson
Kyrrðarvakan er haldin í Skálholtsbúðum, tveggja manna herbergi, heitur pottur. Kyrrðarvakan hefst kl. 18.00 á föstudegi og lýkur með máltíð kl. 12.00 á mánudegi.
Verð: 45.000 – allt innfalið, gisting 3 nætur, gómsætt grænmetisfæði, kennsla.
Skráning og nánari upplýsingar
Sorry, comments are closed for this post.