Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Yin yoga styrkir djúpvefi, liðamót og bein og skapar jafnvægi í orkubúskap líkamans. Á þessu námskeiði eru kenndar seríur sem styrkja orkusvið líkamans og frætt um orkustöðvar. Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina. Í yin yoga eru iðkaðar yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum er haldið í slökun í allt að 5 mínútur. Lögð er áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
8 vikna námskeið hefst 27.mars
Mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
Kennari Ásta Arnardóttir
TILBOÐ 22.000 (fullt verð 25.000) innifalið opið kort í yoga
Skráning og nánari upplýsingar
yoga@yogavin.is
yoga@yogavin.is
Verið hjartanlega velkomin
Sorry, comments are closed for this post.