Langar þig að slaka á, hlúa að líkamanum og efla meðvitund ?
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut.
Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
YIN YOGA DJÚPNÆRING 4 VIKUR HEFST 6. JANÚAR
KENNT mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
KENNARI Nanna Hlín Skúladóttir
TILBOÐ 13.500 – innifalið opið kort í Yogavin sjá stundaskrá
SKRÁNING smelltu hér
Sorry, comments are closed for this post.