Yin yoga og núvitund hefst 4. mars TILBOÐ

Yin yoga og núvitund hefst 4. mars TILBOÐ

Langar þig að slaka á, hlúa að líkamanum og efla meðvitund ?

Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.

Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut.

Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.

4 vikna námskeið hefst 4.mars
KENNT mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
KENNARI Áróra Helgadóttir og Ásta Arnardóttir 
TILBOÐ 13.500 – innifalið opið kort í Yogavin að verðmæti 13.500
NB! FRÍTT fyrir korthafa í Yogavin

SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This