Yoga og vellíðan hefst 28. maí TILBOÐ

Yoga og vellíðan hefst 28. maí TILBOÐ

Yoga stuðlar að vellíðan á fjölbreyttan hátt. Líkamlega, tilfinningalega og andlega. Á þessu námskeiði verða kynntar jákvæðar aðferðir til að auka vellíðan með sjálfsvinsemd að leiðarljósi. Hrafnhildur fléttar yogafræðin við jákvæða sálfræði en þessi fræði eiga það sameiginlegt að vökva fræ vinsemdar og auka þannig vellíðan í daglegu lífi. Farið verður í fimm leiðir að vellíðan og ýmis fróðleikur settur inn á lokaða síðu á Facebook. Í hverjum tíma er fræðsla, stutt hugleiðsla, nærandi yogaflæði og slökun í lokin. Dásamlegt að mæta á dýnuna eftir kvöldmat og endurnæra sig fyrir svefninn.

YOGA OG VELLÍÐAN
4 vikur hefst 28. maí
Kennt á mán og mið kl. 19.00 (75 mín)
Kennari Hrafnhildur Sævarsdóttir
Tilboð 13.000 – innifalið opið kort í Yogavin
Skráðu þig hér

Hrafnhildur er yogakennari, yoga nidra kennari, íþróttakennari, og hefur lokið kennaraþjálfun í hugleiðslu og núvitund frá School of positive transformation og lauk diplómanámi í jákvæðri sálfræði í maí 2018. Hún hefur stundað yoga frá 1999 og tekið þátt í mörgum yogasmiðjum og hugræktarnámskeiðum. Hún lauk 240 tíma yogakennaranámi í Yogavin árið 2016 og byrjaði sama ár að kenna þar. Meðal námskeiða sem hún hefur sótt er krakkajógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann, yoga með Lukas Rockwood stofnanda Absaloute Yoga Academy, vinnustofa með Les Leventhal, Acro yoga vinnustofu hjá Dice Lida Klein, kennaraþjálfun með áherslu á byrjendur hjá Julie Martin Brahmaniyoga og vinysasa yogaflæði fyrir ungt fólk með Ryan Leier hjá Oneyoga.

 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This