Yogaferðir

1011402_10201813189639444_653819557_n

Ásta Arnardóttir hefur allt frá árinu 2002 stofnað til leiðangra um hálendisvíðernin og vakið athygli á fáséðum djásnum miðhálendisins. Ásta leggur áherslu á öræfaferðir með yoga og hugleiðslu, göngum og skemmtilegri samveru þar sem fléttað er inn grunnstefum yogavísindanna um lögmál náttúrunnar. Markmið ferðanna er að efla meðvitund um náttúruvernd og mikilvægi þess að vernda lífríki jarðar.

YOGAFERÐIR 2016

FEGURÐIN VIÐ LANGASJÓ 28. – 31. JÚLÍ

Gönguferð um einstaka hálendisvin, trússferð með fullu fæði, Brynhildru kokkar, yoga, leiðsögn, sigling á vatninu.

Ferðalýsing

Breiðbak – Langisjór – Fögruvellir – Útfall  – Ást – Fögrufjöll – Sveinstindur

4 daga truss, tjaldgisting, sigling og fullt fæði
Yoga kvölds og morgna

1. DAGUR:
Brottför frá Reykjavík kl. 8.00 og ekið að Langasjó og á Breiðbak. Gengið á  Breiðbak en þar er fagurt útsýni yfir tignarleg öræfin umhverfis Langasjó. Í norðri Jökulheimar og Tungnáröræfin en Fögrufjöll í suðri og víðsýni yfir Skaftáröræfi og Torfajökulssvæðið. Jöklasýn mikil og jökulskildir blasa við í góðu veðri. Gengið að Langasjó og eftir norðurströnd vatnsins í náttstað móts við Fagrafjörð. Tjaldað til tveggja nátta.

2. DAGUR
Við njótum öræfakyrrðar og fjölbreytileika í landslagi í nánd við Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu. Gengið um Mosa og austanverð Fögrufjöll að Útfalli og sem leið liggur í hlíðum fjalla með útsýni að upptökum Skaftár og til baka í náttstað þar sem  Brynhildur býður okkar með heita máltíð.

3. DAGUR
Siglt um margbreytilegar eyjar Langasjós í Fagrafjörð að eyjunni Ást og gengið í land sunnan við fjörðinn. Gengið þaðan um fagurlendi Fögrufjalla í gróðursælu og formfögru landslagi meðfram vötnum og fjallshlíðum að Sveinstindi. Tjaldað við rætur fjallsins við vesturenda vatnsins. Hátíðarkvöldverður í fjallasal, söngur og gleði.

4. DAGUR
Gengið á Sveinstind en þar er  víðsýni mikið yfir tignarleg öræfin. Landslagsheild og jarðminjar eru einstakar á þessu svæði. Við blasir samspil jökla og jökulelfa, gróðurlendis og steinaríkis í eldfjallalandslagi með heimsþekktum jarðminjum s.s. Lakagígum sem bera vitni um mesta eldgos á sögulegum tíma 1783 en þá runnu 12 km3 af hrauni úr iðrum jarðar.  Ekið til byggða.

Ferðin hefst í Reykjavík brottför frá BSÍ kl. 8.00 og keyrt að Langasjó. MÆTING 7.30 MIKILVÆGT AÐ MÆTA TÍMANLEGA TIL AÐ LESTA BÍLINN. Þetta er trússferð þ.e. farangur er fluttur á milli náttstaða og þarf því aðeins að bera dagspoka með nesti og hlífðarfötum. Dagleiðir eru mislangar en ávalt farið fremur hægt yfir.

Verð TILBOÐ 99.000  / fullt verð 120.000
Innifalið í ferð er akstur, farangurstrúss, sigling, leiðsögn, yoga, fullt fæði og kokkur sem eldar
Ath. Allur matur er innifalin, líka nesti.

Leiðsögn og yoga: Ásta Arnardóttir
Matráðskona : Brynhildur Þorgeirsdóttir
Bílstjóri: Victor Melsted
Sigling Björgunarsveitin Stjarnan

Skráning yoga@yogavin.is
Sími: 8626098

 

Sjá nánar um Augnabliksferðir

1915067_451636496410_1988203_n

 10527478_10152974153526038_2956408795355653611_n

IMG_0702 IMG_0688 IMG_0670 IMG_0661 IMG_0587 IMG_7872 IMG_6907 IMG_6839 IMG_6079_1 IMG_6002_1 IMG_5892_1 IMG_4034 IMG_3976 IMG_3951 IMG_3922 IMG_3828 IMG_3654_1

 

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This