Yoga nidra fyrir unglinga

10 vikur hefst 1. október

Kennari Jóhanna Pálsdóttir

Kennt á þrið kl. 16.00 (45 mín)

Verð - 19.500 / Frístundakortið gildir

Yoga nidra er leidd djúpslökun sem losar um streitu, bætir svefninn, skapar vellíðun, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og tengir djúpt við sköpunarkraftinn.

Rannsóknir sýna að yoga nidra bætir námsárangur og reynsla okkar er sú að unglingar njóta þess virkilega að iðka yoga nidra. Nemendur læra að vinna með ásetning á jákvæðan og áreynslulausan hátt í slökunarástandi sem gefur djúpa ró. Iðkuninni eflir sjálfstraust, námið verður léttara og félagfærnin blómstrar.

Iðkendur eru markvisst leiddir inn í bilið á milli svefns og vöku. Þar á sér stað endurheimt, áreynslulaus streitulosun og djúpslökun.

Léttar og skemmtilegar yogaæfingar í upphafi tímans undirbúa nemendur fyrir slökun. Í yoga er legið undir teppi í leiddri djúpslökun, ekkert sem þarft að gera bara njóta þess að vera.

Yoga nidra djúpslökun

  • Losar um streitu

  • Minnkar kvíða

  • Róar taugakerfið

  • Skapar jafnvægi

  • Bætir svefn

  • Eflir einbeitingu

  • Gefur hugarró

  • Eykur vellíaðan

  • Bætir minnið

Við erum með dýnur, teppi og púða á staðnum.

Jóhana Pálsdóttir lauk yogakennaranámi í Yogavin 2017 og tveimur krakkayoga kennaranámskeiðum, Yoga and mindfulness for kids hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017. Árið 2018 lauk hún Yoga Nidra kennaranámi með Matsyendra. Hún er grunnskólakennari, kennir unglingum í Salaskóla og hefur bakgrunn í leiklist og leiklistarkennslu hjá Leikfélagi Kópavogs. Jóhanna hefur nú í nokkur ár kennt öllum aldurshópum í Salaskóla yoga og Yoga Nidra sem valgrein.