Bandvefsnudd með boltum hefst 2. nóv

Bandvefsnudd með boltum hefst 2. nóv

Finndu þína leið í átt að betri vellíðan líkamlega og andlega. 

Námskeið sem losar um stífni í bandvef og gefur aukna líkamlega vellíðan með nuddboltum, yin djúpteygjum, öndun og slökun. Notaðir nuddboltar sem gefa líkamanum endurnærandi bandvefsnudd sem losar um spennu og eykur vökvaflæði. Bandvefsnudd getur létt á langvar­andi verkj­um og spennu og opnað fyrir nýja hreyfimöguleika og líkamlega vellíðan. Lögð er áhersla að njóta augnabliksins og gefa líkama og sál djúpa hvíld og ró. Í hverjum tíma er bandvefsnudd, meðvituð hreyfing og öndun með góðri slökun í lokin.

 

Bandvefsnudd – með því að rúlla líkamann eykst blóðflæðið til vöðvanna sem leiðir af sér betri hreyfanleika, getur minnkað harðsperrur og flýtt fyrir bata í vöðvum eftir æfingar. Það eflir orkuflæði líkamans og nærir djúpvefi, bein og liðamót.

 

Yin djúpteygjur – með því að leggja meðvitað álag á liðina með djúpri öndun gefum við vöðvum, festum og bandvef tækifæri á að mýkjast upp og losa um spennu. Djúpteygjur róar hugann og auka líkamsvitund. Í slökun fær líkaminn þá hvíld sem hann þarf til að endurnærast og byggja sig upp. Unnið er með taugakerfið, sogæðakerfið og stoðkerfið!

 

Mælum með yin yoga & tónheilun á þriðjudögum 17.00 með þessu námskeiði – innifalið í opnu korti

 

Námskeið sem bætir líkamsvitund og líkamsstöðu og minnkar vöðvaspennu, stress og streitu.

 

BANDVEFSLOSUN & YIN DJÚPTEYGJUR

8 vikna námskeið hefst 2. nóvember
KENNT fimmtudaga 17.00 (60 mín)
KENNARI Nanna Hlín Skúladóttir
VERÐ 27.000 – innifalið opið kort í Yogavin 

Nanna Hlín Skúladóttir kennir yin yoga, yogaflæði, bandvefslosun og yoga nidra. Hún lauk yogakennaranámi hjá Ástu í Yogavin 2018 og tók kennsluréttindi í bandvefsloun og hreyfifærni hjá Happy Hips 2021

 

SKRÁNING smelltu hér

 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This