Yoga nidra & tónheilun hefst 1. nóv

Yoga nidra & tónheilun hefst 1. nóv

Yoga nidra djúpslökun losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Tónbað með kristalskálum gefur kyrrð og ró. Þú liggur undir teppi, þarft ekkert að gera bara njóta þess að vera.

YOGA NIDRA OG TÓNHEILUN

8 vikur hefst 1. nóvember
Kennari Ásta Arnardóttir og Ólafiu Wium
Kennt miðvikudaga kl. 20.45 (45 mín)

TILBOÐ 19.500 – innifalið yoga nidra passinn á meðan á námskeiði stendur – þú getur valið um 6 yoga nidra tíma á viku auk yoga nidra á netinu sjá stundaskrá

YOGA NIDRA er leidd djúpslökun sem vindur ofan af streitu, spennu og kvíða og skapar hugarró og vellíðan. Heilsufræði ýmiskonar benda á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld.

 

TÓNHEILUN skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Gong og kristalskálar mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels.

 

YOGA NIDRA TÓNHEILUN er leidd yoga nidra djúpslökun og tónbað í hárri tíðni kristalskálanna.

 

Ásta Arnardóttir stofnaði Yogavin 2014 Hún hefur kennt yoga frá 1999 og yogakennaranám frá 2010 og kennt fjöldamörg námskeið í yoga, hugleiðslu og yoga nidra. Hún er stofnfélagi Félags um vipassana hugleiðslu og leiðir reglulega hugleiðslu og kyrrðarvökur á vegum félagsins. Hún hefur tekið tvö kennaranám í Yoga Nidra hjá Uma Dinsmore Tuli og Matsyandra.

 

Ólafia lauk 270 tíma yogakennaranámi í Yogavin 2015, Yoga Nidra kennaranám hjá Matsyendra Sarasvati 2019 og skipuleggur reglulega Yoga nidra kennaranám og Pranayama kennaranám með Matsyandra í Yogavin.

 

SKRÁNING smelltu hér

 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This