Yoga nidra djúpslökun TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Þú liggur undir teppi, þarft ekkert að gera bara njóta þess að vera.

YOGA NIDRA DJÚPSLÖKUN
8 VIKUR hefst 23. ágúst
með Ástu Arnardóttur og Ólafíu Wium
KENNT miðvikudaga kl. 20.45 (45 mín)
TILBOÐ 17.500 – innifalið yoga nidra passinn sem gildir í alla yoga nidra tíma á stundaskrá 
SKRÁNING smelltu hér
YOGA NIDRA er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld.
SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This