Bandvefslosun með boltum hefst 7. sept

Bandvefslosun með boltum hefst 7. sept

Finndu þína leið í átt að betri vellíðan líkamlega og andlega.
Námskeið sem losar um stífni í bandvef og gefur aukna líkamlega vellíðan með nuddboltum, yin djúpteygjum, öndun og slökun. Notaðir nuddboltar sem gefa líkamanum endurnærandi bandvefsnudd sem losar um spennu og eykur vökvaflæði. Bandvefsnudd getur létt á langvar­andi verkj­um og spennu og opnað fyrir nýja hreyfimöguleika og líkamlega vellíðan. Lögð er áhersla að njóta augnabliksins og gefa líkama og sál djúpa hvíld og ró. Í hverjum tíma er bandvefsnudd, meðvituð hreyfing og öndun með góðri slökun í lokin.
Bandvefsnudd – með því að rúlla líkamann eykst blóðflæðið til vöðvanna sem leiðir af sér betri hreyfanleika, getur minnkað harðsperrur og flýtt fyrir bata í vöðvum eftir æfingar. Það eflir orkuflæði líkamans og nærir djúpvefi, bein og liðamót.
Djúpteygjur – með því að leggja meðvitað álag á liðina með djúpri öndun gefum við vöðvum, festum og bandvef tækifæri á að mýkjast upp og losa um spennu. Djúpteygjur róar hugann og auka líkamsvitund. Í slökun fær líkaminn þá hvíld sem hann þarf til að endurnærast og byggja sig upp. Unnið er með taugakerfið, sogæðakerfið og stoðkerfið!
Námskeið sem bætir líkamsvitund og líkamsstöðu og minnkar vöðvaspennu, stress og streitu.
BANDVEFSLOSUN & YIN DJÚPTEYGJUR
8 vikna námskeið hefst 7. september
KENNT fimmtudaga 17.00 (60 mín)
KENNARI Nanna Hlín Skúladóttir
VERÐ 27.000 – innifalið opið kort í Yogavin
NB ! einnig hægt að kaupa opið kort haustönn 48.000 þessir tímar eru inni á opinni stundaskrá og námskeiði innifalið í opnu korti á haustönn
Nanna Hlín Skúladóttir kennir yin yoga, yogaflæði, bandvefslosun og yoga nidra. Hún lauk yogakennaranámi hjá Ástu í Yogavin 2018 og tók kennsluréttindi í bandvefsloun og hreyfifærni hjá Happy Hips 2021
SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This