Yoga nidra djúpslökun hefst 1. mars TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun hefst 1. mars TILBOÐ

Langar þig að losa um streitu og skapa vellíðan á kyrrlátan og mildan hátt ? Yoga nidra er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi.

YOGA NIDRA 8 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 1. MARS
KENNT miðvikudaga 20.45 (45 mín)
KENNARI Ásta Pjetursdóttir
TILBOÐ 17.500 – innifalið yoga nidra passinn *

SKRÁNING smelltu hér

* Yoga nidra passinn gildir í 7 opna yoga nidra tíma á viku sjá stundaskrá

Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra. Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.
UM KENNARANN
Bakgrunnur Ástu er í tónlist, en hún er klassískt menntaður víóluleikari frá Royal Danish Academy of Music í Kaupmannahöfn og hefur meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kammersveitinni Elju. Einnig er hún söngvaskáld og hlaut Íslensku tónlisarverðlaunin árið 2019 fyrir plötu ársins í þjóðlagatónlist. Hún hefur stundað yoga nidra í nokkur ár, meðal annars í Yogavin, en  árið 2022 lauk Ásta yogakennaranámi hjá Ástu Arnardóttur í Yogavin og yoga nidra-kennaranámi hjá Matsyandra sama ár.

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This