Bandvefsnudd með boltum hefst 11. jan.

Bandvefsnudd með boltum hefst 11. jan.

Námskeið sem losar um stífni í bandvef og gefur aukna líkamlega vellíðan með nuddboltum, yin djúpteygjum, öndun og slökun.

Notaðir nuddboltar sem gefa líkamanum endurnærandi bandvefsnudd sem losar um spennu og eykur vökvaflæði. Bandvefsnudd getur létt á langvar­andi verkj­um og spennu og opnað fyrir nýja hreyfimöguleika og líkamlega vellíðan. Lögð er áhersla að njóta augnabliksins og gefa líkama og sál djúpa hvíld og ró. Í hverjum tíma er bandvefsnudd, meðvituð hreyfing og öndun með góðri slökun í lokin. Með því að rúlla líkamann með nuddboltunum eykst blóðflæðið til vöðvanna sem leiðir af sér betri hreyfanleika, getur minnkað harðsperrur og flýtt fyrir bata í vöðvum eftir æfingar. Það eflir orkuflæði líkamans og nærir djúpvefi, bein og liðamót.

Yin djúpteygur leggja meðvitað álag á liðina og með djúpri öndun gefum við vöðvum, festum og bandvef tækifæri á að mýkjast upp og losa um spennu. Djúpteygjur róar hugann og auka líkamsvitund. Í slökun fær líkaminn þá hvíld sem hann þarf til að endurnærast og byggja sig upp. Unnið er með taugakerfið, sogæðakerfið og stoðkerfið!

Námskeið sem bætir líkamsvitund og líkamsstöðu og minnkar vöðvaspennu, stress og streitu.

 

BANDVEFSLOSUN MEÐ BOLTUM

8 vikna námskeið hefst 11. janúar
KENNT fimmtudaga 17.00 (60 mín)
KENNARI Nanna Hlín Skúladóttir
VERÐ 27.000 – innifalið opið kort í Yogavin
Mælum sérstaklega með yin yoga & tónheilun með þessu námskeiði og svo auðvitað okkar dásamlegu tímum í yoga nidra & tónheilun

 

Nanna Hlín Skúladóttir er kennari og yogakennari og kennir yin yoga, yogaflæði, bandvefslosun og yoga nidra. Hún lauk yogakennaranámi hjá Ástu í Yogavin 2018 og tók kennsluréttindi í bandvefsloun og hreyfifærni hjá Happy Hips 2021

 

SKRÁNING smelltu hér

 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This