Yoga nidra & tónheilun hefst 9. janúar TILBOÐ

Yoga nidra & tónheilun hefst 9. janúar TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Tónbað með kristalskálum gefur kyrrð og ró. Þú liggur undir teppi, þarft ekkert að gera bara njóta þess að vera.

YOGA NIDRA OG TÓNHEILUN
8 VIKUR hefst 9. janúar
með Ástu Arnardóttur
KENNT mán kl. 20.15 (45 mín)
TILBOÐ 17.500 – innifalið yoga nidra í hádeginu og föstudaga kl. 17.30
Nidra pranayama þrið og fimmt kl.12.00 (45 min)
Nidra tónheilun mið kl.12.00 (45 min)
Yoga nidra föst kl.17.30 (45 min)
Aðgangur að Yoga nidra á netinu
YOGA NIDRA er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.
TÓNHEILUN skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Ásta notar tvær kristalskálar, súper 7 kristalskál og selenite kristalskál. Þær mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels.
YOGA NIDRA TÓNHEILUN er leidd yoga nidra djúpslökun og tónbað í hárri tíðni kristalskálanna.
Ásta Arnardóttir stofnaði Yogavin 2014 Hún hefur kennt yoga frá 1999 og yogakennaranám frá 2010 og hefur útskrifað yfir 100 yogakennara. Hún er stofnfélagi Félags um vipassana hugleiðslu og leiðir reglulega hugleiðslu og kyrrðarvökur á vegum félagsins. Hún hefur tekið tvö kennaranám í Yoga Nidra hjá Uma Dinsmore Tuli og Matsyandra.
SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This