Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði líkamans og næra djúpvefi líkamans, bein og liðamót. Farið er í seríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum og yin yoga stuðlar að jafnvægi í orkubrautunum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut. Gerðar eru seríur sem styrkja markvisst þessar orkubrautir og geta haft djúpstæð áhrif til heilunar.
Í yogavin eru opnir tímar í yin yoga og einnig reglulega yin yoga námskeið.
Yin yoga og núvitund 4 vikna námskeið. Fléttað er inn grunntækni núvitundar til að dýpka iðkunina.
Yin yoga og tónheilun 4 vikna námskeið. Ásta Arnardóttir leiðir yin yoga með kristalskálum sem skapa jafnvægi í öllu orkusviði líkamans. Hún leiðir einnig í gegnum fjórar stoðir núvitundar sem leið til að dýpka iðkunina.
Yin yoga sjálfsmildi 4 vikna námskeið. Þóra Ingólfsdóttir leiðir yin yoga með áherslu á sjálfsmildi og kærleiksríka nærveru.