Langar þig að róa hugann og efla líkamsvitund? Langar þig að auka styrk og skýrleika? Langar þig að virkja innri gleði og vellíðan? Njóttu þess að mæta til leiks og uppgötva áhrifamátt yogaiðkunar.
KENNT mán og mið kl. 19.00 (80 mín)
KENNARI Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir
VERÐ 25.900 – innifalið opið kort á meðan á námskeiðinu stendur sjá stundaskrá
Á þessu skemmtilega og markvissa grunnnámskeið í yoga gefst frábært tækifæri að hlúa að líkama og sál á markvissan hátt. Þú lærir áhrifaríkar aðferðir til að efla meðvitund, styrkja öll grunnkerfi líkamans og hlúa að jákvæðum samskiptum í daglegu lífi. Kenndar eru asana líkamsstöður, vinyasa meðvituð hreyfing, pranayama önduræfingar, dharana einbeiting og yoga nidra slökun. Frætt er um yogafræðin samkvæmt í áttföldu leið Patanjali og hvernig þau nýtast sem landakort í jákvæðum samskiptum við sjálf okkur og aðra.
VINYASA meðvituð hreyfing
DHARANA einbeiting
YOGA NIDRA slökun
Sorry, comments are closed for this post.