Nidra tónheilun hefst 11. sept TILBOÐ

Nidra tónheilun hefst 11. sept TILBOÐ

Ásta leiðir yoga nidra og tónheilun sem gefur djúpa og nærandi hvíld og fínstillir orkusvið líkamans.

NIDRA TÓNHEILUN HEFST 11. SEPT
mið kl. 12.00 (50 mín)
með Ástu Arnardóttur
TILBOÐ 8 VIKUR 15.000 – innifalið yoga nidra á föst kl. 17.30

NB! námskeiðið er innifalið í opnu korti í Yogavin
TILBOÐ HAUSTÖNN 42.000 – gildir í alla tíma skv. stundskrá
yogaflæði, yin yoga, kraftyoga, nada yoga, yoga núvitund, dansflæði, yoga nidra og nidra tónheilun. Erum með HUGARRÓ Í HÁDEGINU alla virka daga kl. 12.00 skapandi hádegistímar sem endurnýja orkuna.

YOGA NIDRA er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.

Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.

TÓNHEILUN skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Ásta notar tvær kristalskálar, súper 7 kristalskál og selenite kristalskál. Þær mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels.

NIDRA TÓNHEILUN er leidd yoga nidra slökun og tónbað í hárri tíðni kristalskálanna.

SKRÁNING smelltu hér

 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This