Hress hryggjarsúla hefst 8. apríl

Hress hryggjarsúla hefst 8. apríl

Er bakið að trufla þig?

Ertu hikandi við að stökkva á námskeið í yoga eða líkamsrækt því þú veist ekki hvort bakið þolir það ?

5 vikna leiðangur

  • Kynnumst frísklegri og líflegri sýn á líkamann, sem hefur verið að ryðja sér til rúms meðal margra frumkvöðla og fræðimanna undanfarið.
  • Könnum áhrifin af dýpri skilningi og meiri líkamsvitund á daglegt líf
  • Tengjum við kyrrð, ró og slökun bæði andlega og líkamlega
  • Meðvituð öndun gefur tækifæri til aukinnar meðvitundar
  • Aukum forvitni, leikgleði og frelsi til að hlusta á eigin líkama, Hvað er það sem líkami þinn þarfnast til að líða sem best?
  • Með mildu og aðgengilegu yogaflæði aukum við hreyfanleika, frelsi og styrk í mjöðum, mjóbaki, efra baki, öxlum og hálsi.

Áróra hefur frá unglingsaldri glímt við verki í baki og þekkir vel áhrif verkja á daglegt líf. Húh hefur brennandi áhuga á líkamanum og fléttast bakgrunnur hennar úr heilbrigðis-verkfræði skemmtilega við heildræna sýn yogafræðanna. Í gegnum tíðina hefur hún öðlast aukinn skilning á hvað getur valdið bakverkjum og hvernig gott er að beita sér í daglegu lífi. Hún nýtur þess að deila þekkingunni og leggur áherlsu á að vher go einn fái ými til að hlúa sem best að sínum líkama, auka líkamsvitund og öðlast þannig meiri möguleika að hafa jákvæð áhrif á eigin heilsu og hamingju.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og vönum yogum.

 

HRESS HRYGGJARSÚLA
5 vikur hefst 8. apríl*
Mán og mið  kl.19:00 (75 mín)
Kennari Áróra Helgadóttir
Verð 25.500 – innifalið opið kort í Yogavin sjá stundaskrá

 

Skráðu þig hér

UMSAGNIR ÞÁTTTAKENDA

Mér fannst merkilegt að skoða hreyfingu og stöðu líkamans með heildrænum hætti, hvernig eitt leiðir af öðru og hvernig vefir, sinar og vöðvar tengjast bæði huga og tilfinningum. Það var áhugavert að uppgötva hvernig hægt er að vinda ofan af rangri líkamsstöðu og beita sér á nýjan og meðvitaðan hátt sem leiðir til betri líðunar. Slökunin í lokin var djúp og dásamleg.

– Steinunn

Það sem mér fannst sérstaklega gott við námskeiðið er að það hentar öllum. Algerum byrjendum og líka okkur sem höfum verið í yoga en erum kannski svolítið stöðnuð.

– Þórunn

Leið alltaf vel þegar ég labbaði úr þessum tímum hjá Áróru. Óhefðbundnir jógatíma þar sem maður fær tækifæri til að uppgötva eigin hreyfimynstur og kynnast anatomiu líkamans.

– Ilmur

Námskeiðið hress hryggsúla er mjög skemmtileg og frumleg leið til þess að kynnast hryggsúlunni sinni. Á námskeiðinu fæst áhugaverð tenging milli jóga og anatómíu líkamans í máli og myndum. Áróra fer varlega inn í allar jógastöður, það hentar vel þeim sem eru með bakverki.

– Lárus

Ég æfi hlaup sem gefur mér mikið. En ég finn að ég hef ríka tilhneigingu til að stífna upp í baki eftir lengri hlaup, bæði í brjóstbaki en þó aðallega í spjaldhrygg og mjóhrygg.  Ég hef reglulega farið í sjúkranudd vegna þessa og sá rekur þessa stífni og eymsli beint til hlaupanna.  Ég er líka öll frekar stíf og stirð og veit að líkami minn þarfnast þess að teygja og öðlast meiri sveigjanleika. Samt, sem er auðvitað týpískt, er ég frekar löt við að teygja sjálf. Ég hef lítið stundað jóga en námskeiðslýsingin vakti strax áhuga minn og ég ákvað að slá til. Í stuttu máli þá fann ég fljótt að þetta var það sem líkami minn þarfnaðist. Tímarnir hafa alveg bjargað mér og ég finn mikinn mun á bakinu. Þessi áhersla á hvernig líkaminn hreyfist og starfar sem ein dýnamísk heild hefur líka verið góð fræðsla. Það að skynja og skilja að ein hreyfing á einum stað getur kallað á aðra annars staðar gerir mann aðeins meðvitaðri um sinn eigin líkama. Sem er auðvitað mikilvægt þar sem hann á að þjóna manni ævina á enda.

– Vala

Námskeiðið var með skýr markmið fyrir heildina og fyrir hvern tíma; hafði rökrétta uppbyggingu frá fyrstu viku til þeirrar síðustu; var fræðandi um yogaheimspeki og uppbyggingu líkamans og jók líkamsvitund.
Áróra er með brennandi og smitandi áhuga á því undraverki sem líkaminn er; hún er einlæg og gefandi, vel undirbúin og traustvekjandi, glaðvær og afslöppuð og greinilega með mikla þekkingu á fræðunum. Ég mæli því heilshugar með námskeiði hjá henni.

– Matthildur

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This