Yin yoga  núvitund  tónheilun hefst 16. jan TILBOÐ

Yin yoga núvitund tónheilun hefst 16. jan TILBOÐ

Langar þig að hlúa að þér á mildan og markvissan hátt ? Á þessu 4 vikna námskeiði fléttar Ásta saman yin yoga fyrir okrubrautir líffæranna, metta hugleiðslu, núvitund og tónheilun sem gefur djúpa slökun og endurnýjun fyrir líkama og sál. Ásta hefur kennt yoga og hugleiðslu í rúm 23 ár og fléttar saman á þessu námskeiði áhrifaríkum aðferðum með sjálfsmildi og kærleika að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að iðkendur finni traust og gleði í iðkuninni og finni sína leið að hlúa að sér í daglegu lífi.
 
Yin yoga er mild og máttug iðkun sem sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og slakað á í hverri stöðu í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans. Á þessu námskeiði verða kenndar yin seriur sem gefa þrýstinudd á orkupunkta og og okrubrautir líkamans sem tengjast líffærunum. Hver tími er eins og gott þrýstinudd og hefur áhrif á innri líffærin í gegnum nýrna- og blöðrubraut; lifra- og gallblöðrubraut, lungna- og ristilbraut,
Núvitund og metta frætt er um fjórar stoðir núvitundar og kennd grunntæknin í núvitund. Leitt í stuttar hugleiðslur í hverri stöðu fyrir sig. Metta hugleiðsla með áherslu á sjálfsmildi og sjálfskærleika.
Tónheilun með kristalskálum er frábær leið til að fínstilla orkusvið líkamans. Ásta spilar á kristalskálar sem hækka orkutíðni, skapa jafnvægi og gefa djúpa ró.
 
 
YIN YOGA – NÚVITUND – TÓNHEILUN 4 VIKUR HEFST 16. JANÚAR
KENNT mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
TILBOР15.000 – opið kort í Yogavin sjá stundaskrá
NB! þetta námskeið er innifalið í opnu korti á vorönn
SKRÁNING smelltu hér
 

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This