Yoga nidra tónheilun í hádeginu hefst 12. jan. TILBOÐ

Yoga nidra tónheilun í hádeginu hefst 12. jan. TILBOÐ

Langar þig í djúpnærandi slökun og kyrrðarstund í hádeginu ?

YOGA NIDRA OG TÓNHEILUN
8 VIKUR hefst 12. janúar
Með Ástu Arnardóttur
KENNT mið kl. 12.00 (45 mín)
TILBOÐ 16.500 – innifalið yoga nidra á föstudögum kl. 17.30

YOGA NIDRA er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.

Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.

TÓNHEILUN skapar jafnvægi í orkusviði líkamans og hefur djúpstæð áhrif til heilunar. Ásta notar tvær kristalskálar, súper 7 kristalskál og selenite kristalskál. Þær mynda saman binaural hljóðbylgjur sem skapa jafnvægi á milli hægra og vinstra heilahvels.

YOGA NIDRA TÓNHEILUN er leidd yoga nidra djúpslökun og tónbað í hárri tíðni kristalskálanna.

SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This