Elsku yogar gleðilegt nýtt ár og ástarþakkir fyrir gefandi samverustundir í yoga á liðnu ári. Við tökum fagnandi á móti nýju ári í Yogavin og byrjum 10. janúar. NB! Rólegt yoga 60+ með Agnesi byrjar 17. janúar og NÝIR TIMAR á stundaskrá Chakra vinyasa með Ingu Birnu hefjast 18. janúar. Opið kort gildir í alla tíma skv. stundaskrá. Verð 52.000. Gildir ekki í tíma merkta námskeið. Hlökkum til að taka á móti þér í Yogavin. Allir hjartanlega velkomnir.
SKRÁNING smelltu hér
Nada yogaflæði með Ástu; Langar þig að nota röddina í yoga, opna fyrir orkuflæði og byrja daginn á að stilla inná töframátt möntrunnar ? Möntrur, rödd og yogaflæði gefur skýran fókus og gleði inní daginn. Sjá nánar um Ástu.
SKRÁNING smelltu hér
Rólegt yoga 60+ með Agnesi; Langar þig að stunda yoga með konum á besta aldri ? Mjúkt yoga fyrir 60+ eru gefandi tímar sem skapa jafnvægi, styrkja og liðka líkamann. Kærleiksrík samvera í góðum hópi kvenna. Sjá nánar um Agnesi.
SKRÁNING smelltu hér
Chakra vinyasa með Ingu Birnu; Langar þig að kynnast orkustöðvunum ? Langar þig að uppgötva hreyfimöguleika líkamans og nýja líkamsvitund ? Orkuríkir vinyasa tímar með forvitni og leik að leiðarljósi. Sjá nánar um Ingu Birnu.
SKRÁNING smelltu hér
Yoga nidra tónheilun með Ástu; Langar þig að slaka á og losa um streitu og spennu á mildan og aðgengilega hátt? þú liggur undir teppi í leiddri djúpslökun og tíðni og tónar kristalskálanna gefa djúpa hvíld og fínstilla orkusvið líkamans. Sjá nánar um Ástu.
SKRÁNING smelltu hér
Yin yoga og tónheilun með Ástu; Langar þig í hugarró, slökun, mildi og mýkt ? yin yoga eru liggjandi og sitjandi stöður í slökun, kristalskálar gefa djúpa hvíld og fínstilla orkusvið líkamans, næranadi tímar sem gefa mildi og hugarró. Sjá nánar um Ástu.
SKRÁNING smelltu hér
Djúpt vinyasa með Ástu og Óla; Langar þig í nærandi og skapandi hreyfingu sem eflir meðvitund ? Markvisst yogaflæði með áherslu að hver finni sinn takt og uppgötvi hreyfimöguleika líkamans. Sjá nánar um Ástu og Óla.
SKRÁNING smelltu hér
Kraftyogaflæði með Hrafnhildi og Ingu Birnu; Langar þig að leika þér að því að styrkja líkamann, efla úthald og fara útfyrir þægindarammann ? Hitum upp salinn og tjúnum inní eldsorkuna. Sjá nánar um Hrafnhildi og Ingu Birnu.
SKRÁNING smelltu hér
Yoga núvitund með Þóru: Langar þig í yoga og hugleiðslu á laugardögum ? Yoga, slökun og hugleiðsla sem eflir meðvitund og hugarró. Sjá nánar um Þóru.
SKRÁNING smelltu hér
Opna kortið gildir í alla tíma prófaðu og finndu hvað hentar þér best.
SKRÁNING smelltu hér
Ertu að byrja í yoga ? Við bjóðum reglulega uppá Yoga Grunnnámskeið með Ingunni Fjólu.
Sorry, comments are closed for this post.