Yoga nidra djúpslökun hefst 13. sept TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun hefst 13. sept TILBOÐ


YOGA NIDRA 8 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 13. SEPT 
KENNT mánudaga kl. 20:45 (45 mín)
KENNARI Ásta Arnardóttir ofl
TILBOÐ 16.500 – innifalið yoga nidra á föst kl. 17.30 (45 mín)
Yoga nidra er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.
SKRÁNING www.yogavin.is

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This