Yoga grunnur hefst 4. nóv.

Yoga grunnur hefst 4. nóv.

Langar þig að róa hugann og efla líkamsvitund? Langar þig að auka styrk og skýrleika? Langar þig að virkja innri gleði og vellíðan?

YOGA GRUNNUR hefst 4. nóv.
KENNT mán og mið kl. 19.00 (90 mín)
KENNARI Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir 
VERÐ 22.500 – innifalið opið kort í Yogavin
Sjá stundaskrá

Á þessu skemmtilega og markvissa grunnnámskeið í yoga gefst frábært tækifæri að hlúa að líkama og sál á markvissan hátt. Þú lærir áhrifaríkar aðferðir til að efla meðvitund, styrkja öll grunnkerfi líkamans og hlúa að jákvæðum samskiptum í daglegu lífi. Kenndar eru asana líkamsstöður, vinyasa meðvituð hreyfing, pranayama önduræfingar, dharana einbeiting og yoga nidra slökun. Frætt er um yogafræðin samkvæmt í áttföldu leið Patanjali og hvernig þau nýtast sem landakort í jákvæðum samskiptum við sjálf okkur og aðra.

Hver tími hefst á öndunaræfingum, sem róa hugann og taugakerfið. Kenndar eru asana og leitt meðvitað vinyasa flæði skref fyrir skref með áherslu á að styrkja og liðka líkamann. Í lok tímans er djúpnærandi slökun.

Þátttakendur eru með opið kort í Yogavin á meðan á námskeiðinu stendur.

Kenndar eru:
ASANA yogastöður
PRANAYAMA öndunaræfingar
VINYASA meðvituð hreyfing
DHARANA einbeiting
YOGA NIDRA slökun 

SKRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This