Langar þig að slaka á, hlúa að líkamanum og efla meðvitund ?
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut.
Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
YIN YOGA OG NÚVITUND 4 VIKUR HEFST 2. SEPT
KENNT mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
KENNARI Áróra Helgadóttir
TILBOÐ 13.500 – innifalið opið kort í Yogavin
OPIÐ KORT 2. sept – 21. des. 42.000 – yin yoga námskeiðin eru innifalin í opnu kort og kennt alla haustönnina i sjá stundaskrá
SKRÁNING
www.yogavin.is
Sorry, comments are closed for this post.