Yoga nidra djúpslökun hefst 1. júlí TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun hefst 1. júlí TILBOÐ

Yoga nidra er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
 

Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.

YOGA NIDRA 8 VIKNA NÁMSKEIÐ 1. júlí
Kennt mánudaga kl. 19.00 (45 mín)
TILBOÐ 15.000 – innifalið yoga nidra á mið kl. 12.00 og föst kl. 17.30 (45 mín)
NB! Einnig hægt að skrá sig á SUMARTILBOÐ 2 MÁNUÐIR OPIÐ KORT 18.500 – gildir í alla tíma 1. júlí – 31. ágúst og yoga nidra námskeiðið er innifalið skv. stundaskrá

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This