Stígðu inní styrkinn hefst 15. jan. TILBOÐ

Stígðu inní styrkinn hefst 15. jan. TILBOÐ

Á þessu námskeiði fléttar Hrafnhildur saman aðferðarfræði Baron Babtiste og grunnhugmyndum í jákvæðri sálfræði sem eflir styrk og hugrekki til að stíga útfyrir þægindarammann.
 
Kennt er kraftmikið og orkugefandi yogaflæði byggt á Baron Baptiste aðferðarfræðinni með áherlsu á að tengja saman öndun, huga og líkama. Farið verður í aðferðafræði og uppbyggingu “Journey into power” seríunar en megin tilgangur hennar er m.a að vekja og virkja iðkendur til að lifa af heilindum og af fullri getu frá einu augnabliki til þess næsta. Grunnur í yoga er æskilegur ekki nauðsynlegur og gott er að þekkja helstu grunnstöður í yoga.
 
Ert þú tilbúin að stíga út fyrir þægindarammann þinn og að upplifa eitthvað alveg nýtt ?
4 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 15. JANÚAR
Kennt þrið og fimmtkl 17-18.15.
Verð TILBOÐ 13.500 – innifalið opið kort
SRÁNING smelltu hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This