10 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 20. SEPTEMBER
Frábær hópur unglinga stundaði yoga hjá okkur síðastliðinn vetur. Jóhanna og Signý leiða skapandi yogatíma fyrir unglinga. Kenndar yogastöður, öndunaræfingar, einbeiting, slökun og samsköpun í leik og gleði. Þetta eru skemmtileg námskeið sem efla meðvitund, sjálfstraust og skapandi samskipti.
KENNT fimmtudaga kl. 16.00 (50 mín)
KENNARAR Jóhanna Pálsdóttir og Signý Ingadóttir
VERÐ 17.000 / frístundakortið gildir / 10% systkinaafsláttur
Jóhanna Pálsdóttir er kennari og yogakennari. Hún kennir unglingum í Salaskóla og hefur bakgrunn í leiklist og leiklistarkennslu hjá Leikfélagi Kópavogs. Hún lauk yogakennaranámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi “Yoga and mindfulness for kids” hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017.
Signý Ingadóttir er kennari og yogakennari og kennir 4. og 5. bekk í Ingunnarskóla. Hún lauk yogakennarnámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi í “Yoga and mindfulness for kids” hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017. Þær kenna báðar alla tíma og leggja áherslu á skapandi yoganámskeið sem eflir sjálfstraust, jákvæð samskipti og leikgleði í augnablikinu hér og nú.
Sorry, comments are closed for this post.