Yoga og vellíðan hefst 4. sept TILBOÐ

Yoga og vellíðan hefst 4. sept TILBOÐ

Yoga stuðlar að vellíðan á fjölbreyttan hátt. Líkamlega, tilfinningalega og andlega. Á þessu námskeiði verða kynntar jákvæðar aðferðir til að auka vellíðan með sjálfsvinsemd að leiðarljósi. Hrafnhildur fléttar yogafræðin við jákvæða sálfræði en þessi fræði eiga það sameiginlegt að vökva fræ vinsemdar og auka þannig vellíðan í daglegu lífi. Farið verður í fimm leiðir að vellíðan og ýmis fróðleikur settur inn á lokaða síðu á Facebook. Í hverjum tíma er fræðsla, stutt hugleiðsla, nærandi yogaflæði og slökun í lokin. Dásamleg leið inní nærandi kvöld og betri svefn.

YOGA OG VELLÍÐAN
Kennt á þrið og fimmt kl. 18.30 (75 mín)
Kennari Hrafnhildur Sævarsdóttir 
Tilboð 4 vikur 18.500 – innifalið opið kort í Yogavin að verðmæti 13.000 sjá stundaskrá
Skráðu þig hér
Hrafnhildur er yogakennari, yoga nidra kennari, íþróttakennari, og hefur lokið kennaraþjálfun í hugleiðslu og núvitund frá School of positive transformation og lauk diplómanámi í jákvæðri sálfræði í maí 2018. Hún hefur stundað yoga frá 1999 og tekið þátt í mörgum yogasmiðjum og hugræktarnámskeiðum. Hún lauk 240 tíma yogakennaranámi í Yogavin árið 2016 og byrjaði sama ár að kenna þar. Meðal námskeiða sem hún hefur sótt er krakkajógakennaranám hjá Guðjóni Bergmann, yoga með Lukas Rockwood stofnanda Absaloute Yoga Academy, vinnustofa með Les Leventhal, Acro yoga vinnustofu hjá Dice Lida Klein, kennaraþjálfun með áherslu á byrjendur hjá Julie Martin Brahmaniyoga og vinysasa yogaflæði fyrir ungt fólk með Ryan Leier hjá Oneyoga.

Umsagnir nemenda:

· Flott námskeið sem gerði mér mjög gott
· Lærði að nota öndun til að róa hugann og ná tökum á sjálfri mér
· Rólegt og gott að koma í tíma
· Ég mun nýta mér æfingarnar en ekki síður boðskapinn.
· Mild og góð nálgun
· Góðar pælingar sem komu fram og nytsamlegar
· Lærði að nota aðferðir til að teygja vel á
· Lærði að nota aðferðir til að slaka vel á
· Mjög styrkjandi og eykur jafnvægi
· Námskeiðið er besta skref í heimi sem byrjun á einhverju stórkostlegu ferðalagi eftir dimma mánuði á sál og kropp
· Yndislegir tímar
· Lærði um gleði og bjartsýni
· Góðar ábendingar varðandi jákvætt hugarfar og að hafa stjórn á eigin líðan
· Notaleg kvöldstund (tímarnir taka samt alveg á)
· Hlakkaði til að fara í þessa tíma
· Lærði að það er hægt að íhuga hvar og hvenær sem er
· Lærði að slaka betur á í þessu hraða samfélagi
· Lærði að hugarfari er hægt að breyta

SKRÁÐU ÞIG HÉR

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This