NÝTT námskeið 16.20 LAUS PLÁSS. Námskeið 17.30 FULLT.
Langar þig að slaka á, hlúa að líkamanum og efla meðvitund ?
Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans.
Á þessu námskeiði eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum. Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og milta- og magabraut.
Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.
4 vikna námskeið hefst 7. ágúst
KENNT þriðjudaga og fimmtudaga;
Kl. 17.30 (60 mín) FULLT. Aukanámskeið 16.20 (60 mín) LAUS PLÁSS
KENNARI Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
TILBOÐ 10.500 – innifalið opið kort í Yogavin
UMSAGNIR ÞÁTTTAKENDA
“Yin yoga hefur hreinlega breytt lífi mínu á nokkrum mánuðum. Ég tók það alvarlega og mætti tvisvar í viku og gerði í kjölfarið stóra breytingu í lífi mínu í febrúar. Þessi iðkun er andleg og líkamleg en ég kalla yin yoga að strekkja og hugleiða. Rólegt yoga hentar mér vel, kennarinn er æðislegur og leiður okkur í gegnum tímann með mýkt og frábærum ráðum”. Nanna
“Ég hafði verið nokkur ár í yoga áður en ég prófaði yinyoga fyrst. Það kom mér skemmtilega á óvart, hægt og hljótt, en gríðarlega áhrifaríkt. Leynir á sér og afar gott að blanda saman við aðra tíma. Reynir á aðra þætti en maður er vanur. Þóra er frábær yinyoga kennari”. Hrefna
SKRÁNING
Sorry, comments are closed for this post.