Krakkayoga kennaranám 16. – 18. feb með Little flower yoga

Krakkayoga kennaranám 16. – 18. feb með Little flower yoga

YOGA OG NÚVITUND fyrir krakka 3 – 18 ára með Abigil Wilber frá Little Flower Yoga. Námið er viðurkennt af Yoga Allance.

Little Flower Yoga hefur víðtaka reynslu af því að kenna börnum og unglingum yoga og hugleiðslu og kennaranámið gefur frábæran og skapandi grunn fyrir alla sem langar að hjálpa börnum og unglingum að vera besta útgáfan af sjálfum sér.

Þetta er skemmtilegur og skapandi leiðangur með heildræna nálgun og vellíðun iðkenda að leiðarljósi. Þátttakendur læra aðferðir og leiki sem stuðla að sjálfstrausti og jákvæðum tengslum, efla einbeitingu og styrkja líkamsvitund, hlúa að meðvitaðri öndun og slökun. Þátttakendur læra einnig að búa til nýja leiki og skapa nýja leiðangra með skapandi og kærleiksríka nærveru að leiðarljósi.

Ekki er nauðsynlegt að vera yogakennari til að útskrifast úr krakkayogakennaranáminu, námið hentar bæði foreldrum og kennurum, þerapistum og félagsráðgjöfum og öllum þeim sem hafa áhuga á skapandi meðvituðu starfi með börnum.

KENNARI Abigil Wilber senior teacher at Little Flower Yoga
KENNT 16. – 18. feb í Yogavin, Grensásveg 16

Föstudag 16. feb 9:00 – 19:00
Laugardag 17. feb 9:00 – 19:00
Sunnudag 18. feb 9:00 – 19:00

VERÐ
Snemmskráning: $695 gildir til 15. des 2017
Fullt verð eftir það: $795

SKRÁNING
Námið fer fram á ensku og skráning er hjá Little Flower Yoga
www.littlefloweryoga.com

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This