Krakka og unglingayoga hefst 16. jan

Krakka og unglingayoga hefst 16. jan

10 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 16. JANÚAR

Skemmitleg og skapandi yoganámskeið fyrir krakka og unglinga. Kenndar yogastöður, öndunaræfingar, einbeiting, slökun og samsköpun í leik og gleði. Þetta eru skemmtileg námskeið sem efla meðvitund, sjálfstraust og skapandi samskipti.

 

KRAKKAR 7 – 9 ÁRA HEFST 19. JANÚAR
KENNT föstudaga kl. 16.20 (50 mín)
KENNARAR Kristín Berta Guðnadóttir og Paola Cardeas
Þær leggja áherslu á skapandi yoganámskeið sem eflir sjálfstraust, hlustun, jákvæð samskipti. Boðið er uppá fjölskylduyoga tvisvar á námskeiðinu og þá eru allir velkomnir með afar, ömmur, pabbar, mömmur, frænkur, frændur, bræður systur. Frábær samverustund fyrir alla fjölskylduna.

Paola er yogakennari, sálfræðingur, fjölskylduþerapisti.. Hún starfar með börnum og unglingum og lauk yogakennarnámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi “Vinyasa for youth” hjá One yoga 2017.
Kristín Berta er yogakennari, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur. Hún starfar með börnum og unglingum og lauk yogakennarnámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi “Vinyasa for youth” hjá One yoga 2017. Hún er “Intentional Creativity Teacher” og hefur sótt fjölda myndlistarnámskeiða frá unglingsaldri.

 

KRAKKAR 10 – 12 ÁRA HEFST 18. JANÚAR
KENNT fimmtudaga kl. 15.50 (50 mín)
KENNARI Erla Súsanna Þórisdóttir

Erla Súsanna er yogakennari og kennari og kennir unglingum í Háteigsskóla. Hún lauk 8 vikna MBSR námskeiði í núvitund haustið 2014 og kennaranámskeiði í Núvitund á vegum Heilshugar 2015. Hún lauk yogakennaranámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi “Yoga and mindfulness for kids” hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017. Erla hefur kennt núvitund í Háteigsskóla og leggur áherlsu á núvitund og kærleiksríka samveru sem eflir sjálfstraust og leikni í augnablikinu hér og nú.

 

UNGLINGAR 13 – 15 ÁRA HEFST 16. JANÚAR
KENNT þriðjudaga kl. 16.00 (50 mín)
KENNARAR Jóhanna Pálsdóttir og Signý Ingadóttir

Jóhanna Pálsdóttir er kennari og yogakennari. Hún kennir unglingum í Salaskóla og hefur bakgrunn í leiklist og leiklistarkennslu hjá Leikfélagi Kópavogs. Hún lauk yogakennaranámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi “Yoga and mindfulness for kids” hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017.
Signý Ingadóttir er kennari og yogakennari og kennir 4. og 5. bekk í Ingunnarskóla. Hún lauk yogakennarnámi í Yogavin 2017 og krakkayogakennaranámi í “Yoga and mindfulness for kids” hjá Little Flower Yoga í Yogavin 2017. Þær leggja áherslu á skapandi yoganámskeið sem eflir sjálfstraust, jákvæð samskipti og leikgleði í augnablikinu hér og nú.

 

VERÐ:
10 vikur 17.000 / frístundakort ÍTR gildir / 10% systkinaafsláttur

SKRÁNING
skráðu þig hér

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This