Yin yoga og núvitund hefst 9. okt TILBOÐ

Yin yoga og núvitund hefst 9. okt TILBOÐ

Á þessu námskeið eru kenndar yogaseríur sem styrkja orkubrautirnar sem tengjast líffærunum. Þessar orkubrautir eru notaðar í kínverskum nálastungum og yin yoga stuðlar að jafnvægi í orkubrautunum.  Þær eru nýrna- og blöðrubraut, lifra- og gallblöðrubraut, hjarta-, lungna- og smáþarmabraut og  milta- og magabraut.

Yin yoga er áhrifarík iðkun sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal yogaiðkenda. Í yin yoga eru  yogastöður sem eru nálægt jörðinni, sitjandi og liggjandi, og stöðum haldið út frá slökun í allt að 5 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi líkamans. 

Kennd er grunntæknin í núvitund sem leið til að dýpka iðkunina og lögð áhersla á meðvitaða öndun og djúpa slökun.

8 vikna námskeið hefst 9. október
Mánudaga og miðvikudaga kl. 16.20 (60 mín)
TILBOÐ 19.500 – innifalið yoga nidra á föstudögum
NB! Yin yoga námskeiðið er innifalið í opnu korti á haustönn
Opið kort haustönn gildir í alla tíma skv. stundaskrá, við bjóðum uppá tímabilið 1. okt – 22. des á 31.000
Nánari upplýsingar
yoga@yogavin.is
Verið hjartanlega velkomin

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This