Yoga nidra djúpslökun hefst 9. nóv TILBOÐ

Yoga nidra djúpslökun hefst 9. nóv TILBOÐ

Langar þig að slaka á, losa um spennu og streitu, efla sköpunarkraftinn og bæta svefninn ?

 
Yoga nidra er leidd djúpslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.
 
Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.
 
6 VIKNA NÁMSKEIÐ hefst 9. nóvember
Kennt miðvikudaga kl. 19.00 (50 mín) FULLT
AUKANÁMSKEIÐ miðvikudaga kl. 20.00 (50 mín) laus pláss
Kennari Snæfríður Sigurgeirsdóttir
TILBOÐ 11.500 – innifalið yoga nidra á föstudögum 17.30
 
Snæbjörg SIgurgeirsdóttir lauk 240 tíma yogakennaranámi hjá Ástu Arnardóttur Yogavin 2010 og kennaraþjálfun Total Yoga Nidra Teacher Training hjá Uma og Nirlipta Tuli Yogavin 2014. Hún er adjunkt í raddþjálfun í Listaháskóla Íslands.
 
Skráning yoga@yogavin.is
Sími 862 6098

12743831_1692899354313147_6602294535456847547_n

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This