Yoga nidra kvöldnámskeið hefst 9. maí

Yoga nidra kvöldnámskeið hefst 9. maí

Langar þig að slaka á, losa um spennu og streitu, efla sköpunarkraftinn og bæta svefninn ?

Yoga nidra er leidd djúðslökun sem hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Margir hafa notið góðs af því að iðka yoga nidra og iðkunin er sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu og spennu. Heilsufræði ýmiskonar benda okkur á að streita geti verið orsök margra sjúkdóma eða ójafnvægis í líkamanum t.d. meltingartruflana, hormonaójafnvægis, þunglyndis og kvíða. Margir hafa fundið mikla heilsubót og andlega og líkamlega vellíðun í því að iðka yoga nidra.

Yoga nidra er aðgengileg og áhrifarík iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld. Talið er að 30 mínútur í yoga nidra geti verið á við 4 tíma svefn.

4 VIKNA NÁMSKEIÐ hefst 9. maí
Kennt mánudaga kl. 20.30 (50 mín)
Kennari Sigríður Thorsteinsson
TILBOÐ 6900 – innifalið yoga nidra á föstudögum (3 skipti)
Skráning yoga@yogavin.is
Sími 862 6098

Sirrí hefur starfað sem grunnskólakennari frá 1985, vinnur að vottun í markþjálfun, er hláturyogaleiðbeinandi, lauk 240 tíma yogakennaranámi hjá Ástu Arnardóttur Yogavin 2010 og kennaraþjálfun Total Yoga Nidra Teacher Training hjá Uma og Nirlipta Tuli Yogavin 2014. Hún hefur góða reynslu af að kenna yoga nidra bæði í grunnskólum og framhaldsskólum.

Yogavin Grensásveg 16
www.yogavin.is
yoga@yogavin.is
sími 862 6098

Sorry, comments are closed for this post.

Yogavin // Grensásvegi 16, 108 Reykjavík // yoga@yogavin.is // sími 8626098

Share This